Stutt vika í skólanum
Mjáá halló.
Þessi vika gæti ekki verið betri held ég, einungis ein lítil könnun í skólanum, og ekkert stress eins og seinastliðnar 3 vikur. Ég hata stress..
..talandi um stress, þá fékk ég smávægilegt bráðaofnæmi í gær fyrir eplum, ég hef alltaf sýnt e-r smá ofnæmisviðbrögð hingað til, en ekkert meira en bara kláði í augum og hnerri. Í gær gat ég ekki talað, varð þegjandi hás og bólgnaði svo upp að ég átti mjög erfitt með að kyngja. Ég sjálf samt varð ekkert hrædd, en mamma mín brunaði með mig uppá sjúkrahús og ég þurfti að fá töflur og SPRAUTU!
Vandræðalegt að segja frá því, en ég er 17 ára.. og ég þurfti að láta mömmu halda utan um mig þegar ég fékk sprautuna, ég er ein mesta skræfa í heiminum þegar kemur af nálum og e-u sem þarf að stinga inní mann. Samt sem áður finn ég sjaldnast fyrir því þegar nálin fer inn.. en þetta er mjög ógnvekjandi! Sem dæmi þá var ég bara 8-10 ára þegar ég neitaði deyfingu hjá tannlækni vegna sprautuhræðslu.. En já.. bara.. heimskulegt!
Ég get nánast ekki beðið eftir helginni. Löng helgi í skólanum, frí á föst og mán.. ég ætla ásamt mörgum öðrum krökkum úr ME að skella mér suður og hafa það gott og kannski versla smá í tilefni kreppunnar =D
Fólk búið að neyða mig til að smakka KFC mat, sem ég hef aldrei gert áður, er frekar spennt.. samt ekki, það er til svo mikið úrval af hræðilega feitum mat, svo ég held ég myndi frekar halda lífi án þess að vera hakkandi í mig djúpsteikingarfeiti með smá kjúklingi í. En feitur matur er góður, og það er gott og svo ég tali nú ekki um hollt að fá kransæðastíflu.
Jajaja.. en svo vil ég bara koma vel á framfæri ást minni á leynilegu gossip girl ME. Hún er að fara hamförum varðandi slúðurmenningu í ME, þar sem hún var alls ekki nógu mikil fyrir..
Nenni ekki meir, er farin í skólann eða e-ð..
L8er
Nei ertu ekki í flauelsbuxum.. útvíđum ţá?
2 próf í seinustu viku, eitt af þeim lokapróf í efnafræði.. og mér gekk ágætlega í þeim báðum, mikill léttir. Bara eitt próf sem ég veit um ennþá í næstu viku, og það er í líffræði, er alveg nett stressuð fyrir því.. enda 100 bls af lestexta.
Ég held að málið sé að eiga bara rólega helgi, sofa mikið, borða mikið nammi og horfa mikið á e-ð skemmtilegt. Þar sem það er frjósandi ískuldi úti þá hef ég allavega minnstu löngun í að fara undan sænginni ef ég má vera þar.
Talandi um kulda þá hef ég aldrei tekið svona mikið eftir því að það er ekki lengur sumar/haust heldur kominn vetur. -7°C og snjór bara eins og þruma úr heiðskýru lofti! Ég er ekki að fílaða í botn allavega.
Er ég sú eina sem er komin með ógeð af þessu 'kreppu' tali endalaust? Eða er ég bara of lítil til að skilja þetta? Bý náttúrulega bara á hótel mömmu og þarf litlar áhyggjur að hafa af peningum, þó ég hafi nú alveg tekið eftir því að allt í einu hefur allt orðið dýrara. En ætli það sé ekki hægt að halda neyslunni í lágmarki meðan þessi króna heldur áfram að falla.. kaupa bara bland í poka fyrir 150 en ekki 300 kr - að sjálfsögðu á laugardögum þegar það er 50% afsláttur..
Já til að update ykkur smá um tyrkina.. þá eru þeir nánast alveg hættir að hafa samband við mig, þó einn hafi addað mér á msn í dag og delete 'also want to block this person' hafi orðið fyrir valinu, þá er ég orðin óaðlaðandi aftur í þeirra augum. Því miður..
Mustafa, ég mun seint gleyma þér sæti :* - takk fyrir góða tíma og eitt gott spjall!
Annars er ég farin að læra smá í líffræði og elda svo e-ð feitt að borða..
Metnađur..
Jebb, ég ber mikla ást í garð stærðfræði 303..
Endurnýjun bloggmenningar?
Eftir miklar vangaveltur og hugleiðingar hef ég ákveðið að reyna að gera mitt besta í að koma bloggmeningunni aftur í gang. Núna, þegar allir eru hættir að blogga farnir að stunda myspace og facebook hefur maður ekkert að gera lengur á netinu. Og ég sem manneskja sem eyðir kannski heldur miklum tíma fyrir framan tölvuna veit ekkert hvað ég á að gera. Eftir margra sek/mín/klst rúnt um myspace hjá fólki sem ég þekki ekki og farin að taka quiz á facebook og taka þátt í 'the most good looking person...' er ég orðin uppiskroppa, enda ástandið hræðilegt.
En að öðru, þá virðist ég vera sjóðheit meðal Tyrkja þessa dagana. Hætti ekki að fá friend request og messages á myspace frá Mustafa, Ir-shot ofl góðum gæjum. Sumir meira að segja farnir að ganga það langt að adda mér á msn. En um leið og þeir velta upp þeirri spurningu 'do you like sex' og fara að segja hluti eins og 'i want to get a girlfriend' á msn þá er delete og 'i also want to block this person' vinsæll valmöguleiki.
Mustafa félagi hefur áskotnast sá heiður að vera fyrsta manneskjan í heiminum sem er bæði blockaður hjá mér á msn og myspace, þar sem ég fékk 4 messages á dag frá honum. Og í engu af þeim gat hann skrifað nafnið mitt rétt!
"Good evening Mangilhdu"
"How are you Maginhldu"
"What are you doing Manghidlu"
Ég er sármóðguð.. ég hélt að þetta væri manneskjan sem ég myndi koma til með að eyða ævinni með, en jæja.. það eru fleiri fiskar í sjónum, bið kannski hljómsveitina Dalton um að hjálpa mér þar sem þeir eru víst góðir í því.
Já, klukkan er ekki orðin nema 00:30 svo það er kannski spurning um að fara að slútta þessu og fara að sofa.
Magnhildur Ósk
Og já, Mustafa og aðrir Tyrkjar, ef þið lesið þetta þá skiptir það ekki öllu máli því þið skiljið ekkert hvað stendur hér hvort eð er :)
Lots of love
